7.3.2010 | 22:14
Vinur er sá er til vamms segir
Mín kæra gráðuga, heimska, heimtufreka þjóð.
Reyndu að troða því inn í þverhausinn á þér að Norðmenn eru okkar nánasta frændþjóð og vilja okkur Íslendingum vel.
Í Noregi er okkur alltaf vel tekið, á köflum jafnvel betur en við eigum skilið því við höfum ekki alltaf komið vel fram við þá.
Við Íslendingar erum með óttalega unglingaveiki í samfélagi þjóðanna, enda rétt búin að slíta barnsskónum.
Nú erum við, eins og unglingum sæmir, búin að drulla gjörsamlega upp á bak í einni fyllerísferðinni, þrátt fyrir varnaðarorð eldri og vitrari þjóða.
Og auðvitað skríðum við vælandi í faðm foreldranna og ætlumst til að þau borgi fyrir skemmdirnar sem við ullum og að þau "láni" okkur fyrir aðeins meira brennivíni.
En viti menn, góðir foreldrar kunna að segja "Nei!".
|
Ekki frekari lán til Íslands |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.12.2009 | 00:49
H.F.F.
Mér finnst gjörsamlega ÓÞOLANDI að við skulum sitja uppi með skuldir sem einhverjir djöfulsins glæpamenn stofnuðu til og stungu svo öllu gullinu undan (því sem þeir ekki borðuðu).
Það er eiginlega tragíkómískt að horfa upp á Sjálftökuflokkinn kveina "Við borgum ekki, við borgum ekki", meðan hinir svokölluðu "afturhaldskommatittir" virðast ekki sjá aðra leið en að gangast undir þessa afarkosti.
Það hvarflar ekki að mér eitt augnablik, að Sjálfstæðismenn, sem halda að þjóðin geti lifað á innflutningi eingöngu, myndu stofna alþjóðaviðskiptum landsins í hættu. Fyrr myndu þeir selja skrattanum bæði sál sína og ömmu. Þeir halda bara að við Íslendingar séum svo miklir einfeldningar að trúa þvættingnum í þeim. Ég er smeykur um að þeir hafi rétt fyrir sér þar.
Satt að segja finnst mér alþjóðamálefni Íslands þessa stundina vera alltof mikilvæg til að láta stjórnmálamönnum þau eftir.
Ég get ekki varist þeirri hugsun, miðað við hvernig skriðið er fyrir erlendum stórþjóðum núna, að ef stjórnmálamenn nútímans hefðu verið við völd síðustu 50 ár, þá værum við í besta falli með 4 mílna landhelgi í dag.
Mér gæti ekki staðið meira á sama þótt lánalínur okkar erlendis lokist. Það voru erlend lán sem settu þjóðina á hausinn og alveg óþolandi hvað margir virðast halda að allt verði gott ef við bara fáum aðeins meiri lán.
Það er barnaskapur að trúa þeim hræðsluáróðri að við verðum sett í eitthvert allsherjar viðskiptabann, þótt við borgum ekki erlendum þjóðum hverja einustu krónu sem þær hafa tapað á vipskiptum við íslensk glæpafyrirtæki.
Halda menn kannski að ítalska ríkið ábyrgist öll viðskipti mafíunnar?
Að breska ríkið hafi greitt allar erlendar skuldir Berings bankans?
Eða það bandaríska allar Enron skuldirnar?
Líklega ekki.
Það sem þessar þjóðir gera hins vegar, er að elta uppi glæpamennina, refsa þeim og reyna að lágmarka skaðann með því að hafa uppi á þýfinu.
Hér er þessu alveg öfugt farið.
Ég held að við hefðum átt að fordæma Breta aðeins minna fyrir að setja hryðjuverkalög á þessi glæpafyrirtæki og jafnvel bara setja slík lög sjálf.
Það hefði örugglega gefið betri raun en bráðabirgðalögin, sem slógu skjaldborg um glæpamennina á kostnað þjóðarinnar.
Við eigum að sjálfsögðu að borga skuldir OKKAR, en EKKI ANNARRA.
Hér á landi hefur það allt of lengi tíðkast, sem þekkist varla á meðal siðmenntaðra þjóða, að lánardrottnar hafa endalaust skotveiðileyfi á einhverja blásaklausa aðstandendur, en fjárglæframenn leika lausum hala og halda áfram að fremja sína glæpi.
Nú er öll þjóðin orðin ábekkingur.
Við því er ekki nema eitt að segja.
Helv... F... F...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.12.2009 | 00:25
Maður ársins?
Þó ég hafi sjaldan deilt pólitískum skoðunum með Steingrími Jóhanni, þá tel ég ekki annað hægt en að dást að þrekinu og styrknum í manninum.
Ég tek því undir með þeim mikla snillingi, Jóhannesi á Víkurblaðinu, að Steingrímur á fyllilega skilið að vera valinn maður ársins.
Líklega mætti best líkja þeirri viðurkenningu við Nóbelsverðlaun Obama.
Það er algjörlega óvíst, eiginlega frekar ólíklegt, að hann fái nokkru áorkað, en við getum þó alla vega VONAÐ.
Málið er, að Steingrímur er að REYNA.
Hann tók við gjörsamlega tapaðri stöðu, en hann er samt að berjast.
Þjóðarskútunni var siglt all hroðalega í strand, af gjörsamlega vanhæfum blindfullum skipsstjórnendum, sem flúðu manna fyrstir í bátana.
Steingrímur var í hæsta lagi háseti á dallinum, en það er hann sem stendur keikur í brúnni, þótt brimskaflarnir gangi yfir hálfsokkinn dallinn.
Það þýðir hins vegar ekkert fyrir okkur hin, að liggja vælandi ofan í lest og bíða eftir björgun.
|
Tók við af „búskussa“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.6.2009 | 13:52
Glæpamenn vilja leggja niður lögreglu og dómstóla
Veislustjórarnir í Sjálfstæðisflokknum brugðust illa við í hvert skipti sem einhver reyndi að slá á glauminn og gleðina.
Þó að partýið hafi lagt heimilið í rúst og timburmennirnir séu hrikalegir, þá virðast þeir ekki sjá eftir neinu.
|
Ekki tími nýrra stofnanna |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.5.2009 | 09:03
Uppskrift að grilluðum skötusel
Matur fyrir 2 hrausta karlmenn:
3 kíló skötuselur
1 kartafla
kippa af bjór
fullt af kolum
slatti af smjöri
pipar og salt
Kveikið í kolunum (gas er bara fyrir aumingja) með látum.
Notið helling af grillkveikilög og andið að ykkur ilmandi reyknum og gefið skít í að hann sé krabbameinsvaldandi.
Ekki láta ykkur detta í hug að bíða í einhverjar 20-30 mínútur eftir að kolin verði heit.
Skvettið frekar smá bensíni á eldinn.
Skerið filmuna utan af skötuselnum, makið á hann smjöri, sem þið bræðið með krepptum hnefunum, kryddið frekar lítið.
Svo skal skepnan grilluð bara rétt á meðan þið skiptið á milli ykkar bjórkippunni, svona 3-4 mínútur sem sagt.
Á meðan er upplagt að fara í léttan boltaleik með kartöfluna og enda á að grýta henni upp á þak hjá nágrannanum, enda kartöflur ekki mannamatur.
Skóflið svo kvikindinu í ykkur, skolist niður með ísköldu brennivíni, og farið að horfa á leikinn.
Verði ykkur að góðu.
|
Sérsveitin tók á móti skötuselsveiðimönnum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.5.2009 | 11:58
Bond í bullinu
Nú er Pierce Brosnan búinn að drekka of marga Martini.
Kannski væri rétt að hrista hann rækilega, það er alla vega eitthvað hrærður í honum heilinn.
Af hverju í andsk... ætti Barack Obama að skipta sér af því hvað Íslendingar, Norðmenn og Japanir leggja sér til munns?
Svo mætti kannski benda honum vinsamlegast á, að ár hvert deyja margfalt fleiri hvalir í netum bandarískra túnfiskveiðimanna, en nokkurn tíma eru skotnir á Íslandsmiðum.
Það er óþolandi að heyra svona kerlingavæl frá manni sem var í hlutverki eins mesta erkitöffara hvíta tjaldsins.
Það hlýtur að vera einhver leið til að lemja því inn í hausinn á náttúruleysingjum að til þess að fá kjöt, þá þarf að drepa dýr.
Mel Gibson orðaði þetta skemmtilega í einni Leathal Weapon myndinni, þegar Murtaugh (Danny Glover) ætlaði að fá sér bita af túnfisksamloku, en dóttir hans heimtaði að hann fengi sér frekar skinkusamloku af því að túnfiskveiðimenn dræpu hvali:
"Yeah, eat Miss Piggy instead!"
|
Brosnan berst gegn hvalveiðum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.5.2009 | 14:14
Jákvæð mismunun
Misvægi atkvæða milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar er að mínu mati dæmi um nauðsynlega "jákvæða mismunun".
Í rauninni finnst mér að þetta misvægi ætti að vera bundið í jafnréttislög, rétt eins og jákvæð mismunun kynjanna þar sem það á við.
Finnst mönnum það virkilega réttlætismál að 2/3 hlutar þingmanna komi af höfuðborgarsvæðinu?
Hvernig væri að hugsa málið í víðara samhengi?
Viljið menn að Ísland hafi eitt atkvæði hjá Sameinuðu þjóðunum, á móti hverjum 1000 atkvæðum Bandaríkjamanna og 4000 atkvæðum Kínverja???
|
Þingið getur útrýmt misvæginu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.4.2009 | 09:26
Þörf áminning
Sjálfstæðisflokkurinn fékk réttláta refsingu fyrir afglapaháttinn við stjórnvölinn.
Það eru ánægjulegustu tíðindi þessara kosninga að nánast óþrjótandi langlundargeð íslenskra kjósenda skuli loks vera farið að dvína og von til að stjórnmálamenn og -flokkar verði framvegis dæmdir af verkum sínum, í stað þess að vera áskrifendur að atkvæðum.
Fari svo, eins og allt bendir til, að við búum áfram við okkar rótgrólna fjórflokkakerfi, þá vona ég að í næstu kosningum bæti Framsóknarflokkurinn við sig 5-6 mönnum á kostnað Samfylkingarinnar og svo verði það þannig framvegis að þessir 4 flokkar verði allir á sama róli, í kringum 15 þingmenn. Þá fyrst verða kosninganæturnar spennandi, þegar ekki er öruggt hvaða flokkar eiga möguleika á að mynda 2 flokka stjórn og e.t.v. nauðsynlegt að hleypa smáflokki eins og Borgarahreyfingunni að.
|
Flokkurinn þarf að fara í mikla naflaskoðun |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.3.2009 | 18:44
Frábært fordæmi!!!
|
Fær að leita álits sérfræðinga á áverkum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.12.2008 | 10:22
Hagstjórn frá helvíti
Seldi Sjálfstæðisflokkurinn Kölska sálu sína gegn því að verða stærsti flokkurinn í kosningum um aldur og ævi? Það er alla vega ómögulegt að sjá annað en að árar undirdjúpanna hafi ráðið ferðinni í fjármálum þjóðarinnar síðustu árin.
Fjármálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa sleikt upp þvæluna í Hannesi Hólmsteini árum saman með hroðalegum afleiðingum. Þessir bjánar virðast alla tíð hafa haldið að á Íslandi giltu önnur náttúrulögmál en í öðrum löndum. Ég, fyrir mitt leyti, þori hins vegar að fullyrða að t.d. þyngdarlögmál Newtons er hér í fullu gildi og sjaldan jafn öflugt og yfir hátíðirnar :o)
Síðustu 7-8 árin, þegar hér ríkti ofsaþensla og hagkerfið þurfti á kælingu að halda, þá lækkuðu bjánarnir skatta og þöndu út ríkiskassann. Nú, þegar við blasir gríðarlegur samdráttur og hagkerfið mun þurfa á innspýtingu að halda, þá hækka fábjánarnir skatta og skera niður allar framkvæmdir hins opinbera, meðal annars þær sem hafa verið bundnar í lög.
Svo virðist vera alveg sama hvað þjóðin blótar þessum andskotum, þeir fitna þá bara eins og púkinn á fjósbitanum forðum.
Fari það í heitasta helvíti.
|
Hækkun tekjuskatts og útsvars 1,5% |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Stefán Þingeyingur
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.3.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 8059
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar


addi50
calvin
orri
gummih
hallarut
hjaltig
kari-hardarson
photo
omarragnarsson
frisk
sigrg
stefanbogi
svennip
valsol
vefritid
tharfagreinir
metal